Skilmálar
Hinsegin kaupfélagið er í eigu tveggja félagasamtaka, Hinsegin daga og Samtakanna ’78. Hinsegin dagar bera ábyrgð á vefsíðunni. Þegar þú kaupir vörur í Hinsegin kaupfélaginu styrkir þú um leið félagasamtökin tvö, allur ágóði af vörusölu skilar sér beint til félagasamtakanna tveggja. Þú getur náð á okkur á info@hinseginkaupfelagid.is
Vefverslun
Þegar þú pantar hjá okkur þá tökum við sendinguna til um leið og greiðsla berst og þér send staðfesting í tölvupósti. Þú getur valið um að sækja til okkar eða fengið sent. Við sendum með Póstinum og tekur þá að jafnaði tvo til fjóra virka daga fyrir pöntunina að berast.
Sendingarkostnaður bætist við um leið og þú velur hvort þú viljir sækja eða senda til þín. Kostnaður við sendingu er 1500 krónur. Lögbundinn virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar og eru öll verð í íslenskum krónum. Ef varan sem þú pantar af okkur uppfyllir ekki þínar þarfir þá geturðu skilað henni til okkar innan tveggja vikna og fengið endurgreitt að fullu. Varan verður þá að vera óskemmd og í upprunalegum umbúðum, einnig þarf kvittun fyrir viðskiptum að fylgja. Ef um gallaða vöru er að ræða þá endurgreiðir Hinsegin kaupfélagið andvirði hennar að fullu ásamt sendingarkostnaði, ef varan var send til viðskiptavinar.
Mikilvægt er að skila vörunni til Hinsegin daga til að meta gallann og eftir atvikum láta framleiðanda vita.
Hægt er að greiða með greiðslukortum og fer þá greiðslan í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.
Þegar þú verslar við okkur þá geturðu valið að skrá þig á póstlistann í leiðinni. Nánari upplýsingar um okkur: Hinsegin dagar í Reykjavík, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Kennitala: 561199-2219. VSK númer 70989.
Varnarþing
Félagið er staðsett í Reykjavík og þar er varnarþing þess. Rísi ágreiningur um samning þennan verður málið rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
Trúnaður
Hinsegin dagar í Reykjavík heita kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Sendingar úr kerfi Hinsegin kaupfélagsins kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað félaginu notkun á slíkum upplýsingum.
Greiðslukort
Hinsegin kaupfélagið tekur við eftirfarandi greiðslukortum: Visa, Visa Electron, Mastercard, Maestro, American Express, Union Pay, JCB, Diners Club og Discover.
Persónuvernd
Vefsíða Hinsegin kaupfélagsins notar vefkökur (e. cookies) í því skyni að gera vefinn enn betri og aðgengilegri fyrir notendur og til að auka þjónustustig. Vefkökur eru litlar textaskrár geymdar í tölvu eða snjalltæki notandans og gera vefsíðum kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar notandinn Grænu stofunni að safna saman upplýsingum um notkun hans á vefnum. Engar persónulegar upplýsingar eru vistaðar um notendur út frá þessum upplýsingum. Einnig notar Hinsegin kaupfélagið Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um það hvernig notendur nota síðuna. Þetta er gert til að skilja betur hvernig hægt er að bæta upplifun notenda af vefsíðunni. Google Analytics geymir meðal annars upplýsingar um hvaða vefsíður notandi heimsækir, hversu lengi hann er á síðunni og hvað smellt er á.
Vefsíða Hinsegin kaupfélagsins keyrir á WordPress og er hýst hjá 1984.is. Ef notendur vilja ekki nota vefkökur er hægt að breyta stillingum í vafranum sem notast er við svo að upplýsingarnar verði ekki vistaðar án þess að beðið sé um leyfi fyrst. Hægt er að stilla flesta vafra til að þeir taki ekki á móti vefkökum. Í flestum þeirra er að finna leiðbeiningar um hvernig slökkva eigi á vefkökum (e.cookies)