FORPÖNTUN – Hýrasta jólatréð

ATH! 

Kæru vinir, við erum yfir okkur þakklát fyrir ótrúlegar viðtökur! Því miður fengu færri tré en vildu í ár þar sem salan fór langt fram úr okkar björtustu væntingum. 🌟

Við viljum ekki láta ykkur bíða lengi, og því ætlum við að láta framleiða fleiri tré. Þau verða komin til landsins í byrjun janúar og verða afhent um leið og þau koma. Ef þú misstir af Hýrasta jólatrénu í fyrstu umferð, þá er tækifæri til að tryggja þér eitt með forpöntun!

 

Viltu ekki missa af á næsta ári?

Hægt er að skrá sig í áskrift hér

ATH! Skráning í áskrift á ekki við um þetta tré.

———-

Við kynnum með stolti Hýrasta jólatréð, tákn litadýrðar jólanna og kærleika sem fyllir hjörtu okkar á þessum árstíma. Þetta einstaka jólatré markar upphaf nýrrar hefðar sem við vonumst til að verði árleg og muni glæða hátíðarnar gleði, litum og hinseginleika.

Litir skrautsins endurspegla fjölbreytileikann í okkar samfélagi og boða frið, kærleika og von á aðventunni.

Það sem gerir Hýrasta jólatréð enn sérstakara er að skrautið er einnig ætlað sem fjáröflun fyrir mikilvæg málefni. Með því að kaupa Hýrasta jólatréið getur fólk lagt sitt af mörkum til að styðja starf Samtakanna ’78 .

Við hlökkum til að sjá Hýrasta jólatréð prýða aðventuna ár eftir ár og verða skínandi minnisvarða um gleði, samkennd og litadýrð jólanna.

Forseti Íslands fékk fyrsta Hýrasta jólatréð.

 

Hægt að óska eftir persónulegri kveðju eða texta á styrktarkortið í greiðsluferlinu. Þetta er fullkomin leið til að gera gjöfina ykkar enn sérstæðari.

Skrifaðu textann sem þú vilt að komi fram, og við munum sjá til þess að hann verði innifalinn á kortinu með hlýlegum hætti.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: